headerphoto

Framundan

 

Árleg útilega KMK 2.-4 júlí
í  Munðarnesi

Árleg útilega KMK verður að þessu sinni haldin í Munaðarnesi. Í Munaðarnesi er frábær aðstaða, tjaldstæði og einnig er hægt að fá leigð hús ef konur vilja heldur gista inni.
Stutt er í veiði í Hreðarvatni og Langavatni fyrir veiðiþyrstar konur og Golfvöllurinn í Borgarnesi og golfvöllurinn Glanni við Bifröst bíða þeirra sem vilja spila golf. Ýmsar góðar gönguleiðir eru á svæðinu og svo er auðvitað frábær aðstaða til að slappa af og stutt í sund í Varmalandi.

Þeir sem vilja panta gistingu í húsum er bent að á að hafa beint samaband við Frú Stefaníu í Munaðarnesi www.munadarnes.is

Sáumst hressar, kveðja nefndin
 

 

Góugleði KMK 6. mars

Hin óviðjafnanlega árlega Góugleði veður að þessu sinni haldin á Skólabrú. Miðaverð verður það sama og í fyrra kr. 5.500.- þrátt fyrir að allt annað hafi hækkað á okkur í þjóðfélaginu.....Dagskrá hefst að venju með fordrykk kl. 19.00.

Forréttur:
Sjávarrétta Sinfónía
(Skötuselur, Tígrisrækja,, humar á spjóti, ferskt salat með austurlenskri dressingu)

Aðalréttur:
Glóðaður lambavöðvi m/brúarkartöflu, madeira soðgljáa, ristaðri papriku og fersku salati.

Á eftir er boðið upp á kaffi og heimalagað konfekt.

Veislustýra er hin óviðjafnanlega dreifbýliskona Garún...........

Heiðursgestur okkar er Andrea Gylfadóttir
Aðrir gestir: Rokkslæðurnar Kristín Eysteins, Kidda Rokk og Dísa, aldrei að vita nema Gréta slæðist í bæinn! Helga Möller kíkir á okkur, Elín Eyþórs lætur sig ekki vanta og leynigestur kemur til landsins til að heiðra samkomuna. DJ Dagný Borge sér um næturtónana.

Miðasala:
miðarnir eru seldir í Iðu Lækjargötu og Skólabrú. Einnig er hægt að senda inn pöntun á KMK@kmk.is og millifæra síðan inn á reikning félagsins og verða þá miðarnir klárir við innganginn:

Sjö kvenna nefnd undir styrkri stjórn Boggu Ísleifs vinnur nú hörðum höndum að skipulagningu og dagskráin verður ekki af verri endanum.

Þeir sem eru svo óheppnir að komast ekki í matinn og ætla að mæta á ballið:
Húsið opnar kl. 23.30 og kostar 1.000 kr. inn.

Viðburðurinn á síðu á fésbók, þar er hægt að skrá sig eða senda okkur tölvupóst á kmk@kmk.is
http://www.facebook.com/home.php#/event.php?eid=274824202764&ref=ts  Góugleðin er einn af hápunktum í starfi KMK og er um að gera að láta ekki þennan árlega viðburð fram hjá sér fara. Kveðja Góugleðisnefnd KMK 2010
 

--♀♀----

 

30. janúar

Lez Jungle GIRLS NIGHT OUT með Dj Dick & Dyke!

Alvöru stelpuball þar sem að STEMMNINGIN er í fyrirrúmi, Hvar: Á Batteríinu
Þema:
RAUTT
Tónlist: Dj Dick and Dyke

Miðaverð: 500 kr.
en ATH ATH: Frítt inn og frítt áfengi til kl. 23:30 (eða á meðan birgðir endast)

 Góð dansiböll fyrir stelpur eru ekki sjálfgefin þessa dagana.

Rautt bindi, rauður varalitur, rauður kjóll, rauð skyrta eða hreinlega bara túrbótími í ljósabekknum er eitthvað sem við væntum þess að sjá í blússandi stemmningu og alvöru danstónlist frá Dj Dick & Dyke sem þið þekkið auðvitað frá Barböru. 

---♀♀----

Open mike í kjallaranum á Skólabrú

Föstudaginn 15. janúar kl. 20.00 verður ,,Open mike" í kjallaranum á Skólabrú. Frábært tilboð á mat og drykk;
kjúklingafajitas og stór bjór eða vínglas kr. 2.300.-
Áfengi verður áfram á tilboði fram eftir kvöldi.

Open mike þýðir að allir hafa tækifæri til að láta ljós sitt skína, hvort heldur sem er upplestur, uppistand, tónlist, ljóð, brandara, gítarinn, söngröddina, eða hvað svo sem er.....

Ertu trúðurinn, söngröddin eða stuðboltinn?
Skemmtum okkur saman á nýju ári og njótum þess að vera saman hvort sem við komum fram eða njótum hæfileika annarra.

Bókmenntakvöld 5. des.

Árlegt bókmenntakvöld KMK verður haldið laugardaginn 5. desember n.k. í Samtökunum, Laugavegi 3. Húsið opnar klukkan 20.00 en upplestur hefst kl. 20.30.Bókmenntakvöld í jólamánuði er árlegur viðburður hjá KMK og er afar vinsæll. Þar lesa rithöfundar upp úr nýjum bókum sínum. Að þessu sinni verður lesið upp úr verkum fjögurra skáldkvenna. Þetta er  tilvalinn vettvangur að koma og hlusta á góðan skáldskap og njóta kvöldstundar í hópi fagurra kvenna.

Lesið verður upp úr eftirfarandi bókum:

Hjá brúnni
Kristín Ómarsdóttir

Ballerínan María býr í ónefndri borg við stórt fljót og stígur dans við lífið. Þennan haustdag, eftir að hafa hjólað til vinnu sinnar fer stundaskrá hennar að raskast og að degi loknum er hún ekki söm. Frásagnargáski, gálgahúmor, skáldleg myndvísi og prakkaraskapur höfundar nýtur sín til fulls í þessari bók.
Kristín Ómarsdóttir hefur sent frá sér fjölda skáldsagna, leikrita, smásagna og ljóðabóka sem vakið hafa athygli og aðdáun langt út fyrir landsteinana og hlotið eftirsótt verðlaun. Hjá brúnni er rós í hnappargatið.

 

Spor
Lilja Sigurðardóttir

Magni, nýkominn úr áfengismeðferð, er fenginn til að aðstoða við morðrannsókn en fórnarlambið tengist samtökum óvirkra alkóhólista. Fyrr en varir þarf hann ekki aðeins að glíma við eigin breyskleika heldur fer fólk að týna tölunni í kringum hann - og grunur að berast að honum sjálfum. Glæsileg frumraun.

 

 

komin til að vera, nóttin
Ingunn Snædal

Metsöluljóðskáldið af Jökuldal sendir nú frá sér nýja bók: hún er um ástina. Eða skort á henni? Bækur Ingunnar; Guðlausir menn og Í fjarveru trjáa hafa heillað bæði leika og lærða. Ingunn var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Guðlausa menn.

Svuntustrengur
Sigurlín Bjarney Gísladóttir


Svuntustrengur hefur að geyma yfir 30 örsögur og fimm smásögur. Litríkar persónur spretta fram í ljóðrænum sögum sem tjá bæði trega og galsa. Yfir öllu sveima svuntur af öllum stærðum og gerðum. Árið 2007 gaf Sigurlín Bjarney út bókina Fjallvegir í Reykjavík.

 

---♀♀----

Jólabingó 3. des

Jólabingó Samtakanna ´78 verður haldið 3. desember n.k. Bingóið hefur stækkað ár frá ári og nú er svo komið að ekki dugar annað en sjálf bingóhöllin í Vinabæ. Jólabingóið hefur fyrir löngu skipað sér fastan sess í jólaundirbúningi margra, enda um að ræða stórskemmtilegt kvöld þar sem mögulegt er að vinna fjölda vinninga sem geta t.d. nýst sem jólagjafir eða komið í góðar þarfir hjá vinningshafanum sjálfum.

---♀♀----

Ný stjórn KMK

Ný stjórn Kmk hefur verið kosin en hana skipa; Jóhanna Gunnlaugsdóttir, María Jónsdóttir, Rúna H. Hilmarsdóttir og Svanfríður Anna Lárusdóttir.

Dagskrá vetrarins verður kynnt hér á síðunni  fljótlega en markmið nýrrar stjórnar er að ,,Konur með konum" eigi skemmtilegan vetur saman. Hefðbundnir viðburðir á dagskrá eru Bókmenntakvöld í desember, Góugleði í mars, golfmót í júní og árlega
útilegan í júlí. Að auki er stefnt að því að hafa uppákomur mánaðarlega.